National ID number: 450510-0680
450510-0680
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu, steinsteyptum vörum, múr- og flotblöndum fyrir íslenskan byggingariðnað. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og var BM Vallá valið umhverfisfyrirtæki ársins 2024 af Samtökum atvinnulífsins. Fyrirtækið hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins og stefnir að því að starfsemi og steypuframleiðsla verði kolefnishlutlaus árið 2030.
BM Vallá á sér hátt í 70 ára sögu og gegnir fyrirtækið forystuhlutverki í framleiðslu á steypu- og múrvörum fyrir byggingariðnað. Framleiðslan byggist á þekkingu, reynslu og gæðum og endist og stenst ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður. Starfsemin er fjölbreytt en fimm starfsstöðvar eru starfræktar á landinu, þ.m.t. steypustöð, múr- og helluverksmiðja, húseininga- og smáeiningaframleiðsla ásamt söluskrifstofum á þremur stöðum. Einnig eru starfræktar tvær rannsóknarstofur þar sem fara fram prófanir, rannsóknir og þróun á þeim vörum sem eru framleiddar hjá fyrirtækinu.
Vöru- og þjónustuframboð BM Vallár er:
Starfsfólk BM Vallár leggur sig fram um að veita framúrskarandi ráðgjöf um rétt efnisval, hönnun og leiðbeina viðskiptavinum með notkun á vörunum. Allar múr- og flotblöndur sem BM Vallá framleiðir uppfylla skilyrði Svansins og BREEAM til að vera notaðar í hús eða endurbætur sem stefna að umhverfisvottun. Öll steypuframleiðsla fyrirtækisins miðar að því að nota vistvænna sement í steypuuppskriftir og draga þannig úr kolefnisspori steypunnar.
BM Vallá leggur mikla áherslu á gæði og stöðugleika í framleiðslu á steypu- og múrvörum. Frá árinu 1996 hefur fyrirtækið verið með vottað ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi sem nær yfir alla þætti starfseminnar og er eini íslenski steypuframleiðandinn með slíka vottun. BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf.