National ID number: 690681-0139
690681-0139
PricewaterhouseCoopers ehf (PwC) á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækja-, skatta- og lögfræðiráðgjafar. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti eins stærsta nets endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækja í heiminum. PwC aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur.
Markmið PwC er að tryggja óhæði og trúverðugleika í störfum sínum og veita ávallt bestu faglegu þjónustu sem völ er á. PwC tryggir aðgengi að nýjungum og þróun í þjónustu með markvissu innra starfi, endurmenntun og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Sterka stöðu fyrirtækisins byggjum við fyrst og fremst á afburða hæfileikum og reynslu starfsmanna. Við leggjum mikið upp úr því að efla fólk í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins.