Breiðhellu 8-10, 221 Hafnarfirði
National ID number: 510588-1189
510588-1189
SORPA er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og sinnir móttöku og meðhöndlun úrgangs frá heimilum og fyrirtækjum.
SORPA sér ekki um sorphirðu, heldur kemur hráefnum til endurvinnslu, bæði hérlendis og erlendis.
SORPA rekur sex endurvinnslustöðvar, móttöku- og flokkunarstöð, gas- og jarðgerðarstöðina GAJU, urðunarstað, nytjamarkaðinn Góða hirðinn, Efnismiðlun og hefur umsjón með grenndargámum á höfuðborgarsvæðinu.
Höfuðmarkmið SORPU er að vera leiðarljós samfélagsins í úrgangsmálum og meðhöndla auðlindir af ábyrgð með sjálfbærni að markmiði.
Við tökum á móti hópum í fræðslu og einstaklingar geta einnig leitað eftir ráðgjöf hjá okkur.
Nánari upplýsingar um flokkun og skil á mismunandi tegundum úrgangs, staðsetningar starfsstöðva, opnunartíma o.fl. má finna á vefnum okkar www.sorpa.is