Sérfræðingar í útlitslækningum í yfir 20 ár

Útlitslækning ehf húð- og kynsjúkdómalæknir

Grensásvegi 13, 108 Reykjavík

National ID number: 621101-5010

Open until 16:15

Grensásvegi 13, 108 Reykjavík

Útlitslækning ehf

húð- og kynsjúkdómalæknir

SMS

Call

Send email

Open until 16:15

Creditinfo - Strongest in Iceland
  • Lýtahúðlækningar, húð- og kynsjúkdómalækningar og
  • lasermeðferðir beinn sími
  • Tannlækningar beinn sími
  • - Bolli Bjarnason dr með húð- og kynsjúkdómalæknir
  • Ellen Flosadóttir M Sc, VEIT tannlæknar heima
  • - Ásgerður Sverrisdóttir, tannlæknir

Upplýsingasíða

 

   Algengar meðferðir


Háreyðing – óæskilegur hárvöxtur - hárlaser

Svört hár er hægt að fjarlægja hvar sem er á líkamanum! Slíkar meðferðir eru algengar í andliti, á hálsi, við bikinilínur, á ganglimum, á baki og á handleggjum. Æskilegt er að fjarlægja svört hár áður en þau tapa lit fyrir besta mögulega árangur. Stundum hefur óeðlilegur hárvöxtur læknisfræðilegar skýringar.

 



 

háreyðingar fyrir og eftir.

Rósroði eða æðaslit í andliti, á ganglimum eða valbrá - æðalasermeðferð

Hægt er að fjarlægja æðar hvar sem er á húðinni með laser frá yfirborði húðarinnar án þess að stinga einu eða öðru inn í húðina!



 

Hrukkur - andlitsfellingar - ELOS – hrukkulaser – húðfyllingarefni- Hrukkubani

Við notum laser og ELOS til að tinna andlitshúðina, fjarlægja hrukkur og minnka áberandi andlitsfellingar. Húðfyllingarefni með hýalúronsýru sem er í húð manna notast einnig talsvert. Í völdum tilfellum beitum við Hrukkubana sem er efni sem slakar á vöðvum. Markmið hrukkumeðferða er að ná aftur eðlilegri húð og viðhalda henni eðlilegri án þess að ofgera.

 


 


Appelsínuhúð (cellulitis) og fitufellingar - fitueyðing

Hægt er að eyða fitu með hljóðfitueyðingu (high-intensity focused ultrasound), kælifitueyðingu (cryolipolysis) eða með ELOS og Endermologie saman.



Hljóðfitueyðing (Cavitation, high-intensity focused ultrasound)

Þessi tækni er mest notuð til að eyða óæskilegri húðfitu hvar sem er á líkamanum, til að endurmóta líkamslínur, minnka ummál líkamshluta, minnka fitukeppi og vinna á appelsínuhúð.


Kælifitueyðing eða fitufrysting (cryolipolysis)

Þessi gerð fitueyðingar byggir á kælingu fitufruma sem leiðir til þess að frumurnar eyðast á náttúrulegan hátt. Aðferðin er m.a. notuð gegn fitu í fitufellingum sem gefa sig illa þrátt fyrir megrun.



Húðflúr (tattoo) og húðflúrsbrottnám

Brottnám húðflúra byggir á eyðingu húðflúrslitarins með laser.



Ör – hlaupabóluör – húðslit – slök húð - húðslípun – ELOS - örlaser

Meðferðin fer fram með laserum, ELOS og/eða húðslípunum og þegar um ör er að ræða einnig stundum með lyfjagjöfum og frystimeðferðum allt eftir gerð öranna.





Lasermeðferð gegn bólum

Þessar meðferðir byggja á gjöf lasergeisla gegn bólum.


Varafylling – varalínur – áberandi sinar á hálsi – fellingar á hálsi eða yfir bringubeini – rýr húð á handarbökum – kinnfiskasognar kinnar

Húðfyllingarefni sem eru ekki fjarræn líkamanum eru notuð til þessara meðferða og stundum ELOS við fellingum.


Opin andlitshúð – ELOS – peel sýrumeðferð

Við notum talsvert ELOS eða læknisfræðileg peel til að vinna gegn opinni andlitshúð.


Blámi umhverfis augun – FACES

FACES hefur sýnt sig minnka bláma umhverfis augun.


Svitavandamál í holhöndum, á höndum og fótum



Nánar á www.utlitslaekning.is