Product image

Acer Aspire 16 AI+ fartölva, 16" FHD+120 Ryzen AI-5-330 16/512GB W11, nps, Stál grá

Acer
Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum gervigreindarhraðli sem skilar allt að 50 billjón gervigreindaraðgerðum á sekúndu. Gervigreindarvinnsla beint í tölvunni getur aukið hraða og öryggi við notkun hjálparforrita, myndvinnslu, samskipti og önnur verkefni sem nýta gervigreind, án þess að öll vinnslan þurfi að fara fram í gegnum internetið.

Glæsileg ný kynslóð þunnrar og léttr…
Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum gervigreindarhraðli sem skilar allt að 50 billjón gervigreindaraðgerðum á sekúndu. Gervigreindarvinnsla beint í tölvunni getur aukið hraða og öryggi við notkun hjálparforrita, myndvinnslu, samskipti og önnur verkefni sem nýta gervigreind, án þess að öll vinnslan þurfi að fara fram í gegnum internetið.

Glæsileg ný kynslóð þunnrar og léttrar Aspire 16 AI fartölvu frá Acer með stórum 16" WUXGA IPS 120Hz skjá í 16:10 hlutföllum. Acer TrueHarmony hljóðkerfi og Acer PurifiedVoice tækni hjálpa til við að bæta hljóðgæði í netfundum og draga úr óþarfa bakgrunnshljóði. FHD vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki hentar vel fyrir myndsímtöl, á meðan tvö USB4 tengi, tvö USB-A tengi, HDMI og microSD kortalesari bjóða upp á fjölbreytta tengimöguleika. Nett álhönnun og baklýst lyklaborð fullkomna svo þessa vönduðu fartölvu.

Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD vefmyndavélinni og innbyggðum hljóðnemum með Acer PurifiedVoice tækni.
  • AMD Ryzen AI 5 330 4-kjarna 8-þráða örgjörvi með allt að 4,5GHz Boost hraða
    • Sérhæfður AMD Ryzen AI NPU gervigreindarhraðall með allt að 50 TOPS
    • Allt að 56 TOPS heildarafköst fyrir vinnslu sem nýtir gervigreind
    • Copilot+ PC fartölva með gervigreindareiginleikum frá Microsoft
    • AMD Radeon 820M skjákjarni fyrir vinnu, streymi og afþreyingu
  • 16GB LPDDR5x innbyggt vinnsluminni fyrir lipra fjölvinnslu
  • 512GB NVMe PCIe Gen4 hraðvirkur M.2 SSD diskur
  • 16" WUXGA 1920x1200 IPS skjár með 16:10 skjáhlutfalli
    • 120Hz endurnýjunartíðni fyrir mýkri og jafnari myndbirtingu
    • Mattur Acer ComfyView skjár sem dregur úr endurkasti
    • 45% NTSC litasvið fyrir daglega vinnu og afþreyingu
  • FHD 1080p vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki
    • Acer PurifiedView tækni sem bætir myndgæði í myndsímtölum
    • Acer PurifiedVoice tækni sem dregur úr bakgrunnshljóði
  • Tveir Acer TrueHarmony hátalarar fyrir skýra hljóðupplifun
  • Wi-Fi 6E þráðlaust net og Bluetooth 5.3 tengingar
  • 2x USB4 tengi fyrir gögn, skjátengingu og hleðslu
    • 2x USB-A 3.2 tengi, HDMI og 3,5 mm hljóðtengi
    • MicroSD kortalesari fyrir einfaldan flutning og aukið geymslupláss
  • Baklýst lyklaborð með Copilot og AcerSense tökkum
  • 65Wh rafhlaða, allt að 14 klukkustunda rafhlöðuending
    • Styður 65–100W USB-C Power Delivery hleðslu
    • 65W USB-C hleðslutæki fylgir ekki með , sjá tengdar vörur
  • Þunn og létt álhönnun, aðeins um 1,55 kg
  • Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
    • Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
Athugið! Hleðslutæki fylgir ekki með. Styður 65–100W USB-C PD hraðhleðslu, sjá tengdar vörur.

Copilot+ PC fartölva

allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúndu

Búin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:

Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.
Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.
Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.
AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.
Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.
Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.
Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.
Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.