Hvað er Alinker?
Alinker er…
Hvað er Alinker?
Alinker er ný nálgun að hjálpartæki sem brúar bilið milli hjólastóls og göngugrindar. Mjög hentugt tæki ef þú hefur einhverja gönguhæfni enn vantar bara smá auka stuðning. Alinker er gönguhjól með stillanlegum hnakki og stýri sem er hannað til þess að ögra staðalímynd samfélagsins á hreyfiskerðingu.
Flest hjálpartæki eru tæknilegar lausnir fyrir líkama með vandamál og leggja áherslu á að hreyfiskerðing sé “vandamál”. Alinker snýr þessari hugsýn á hvolf með því að vera hannað með því sjónarmiði hvernig viðkomandi vill lifa óháð hreyfihæfni. Stór hluti þeirra sem nota hjólastól þurfa ekki endilega á honum að halda og geta notað fæturna að einhverju leyti. Alinker hjálpar þér að halda við færninni og vera í augnhæð við fólkið í kringum þig. Listamaðurinn Selma Blair er greind með MS og hefur Alinker verið algjör bylting í hennar lífi.
Alinker er hannað af Hollendingnum Barbara Alink hér er
viðtal
við hana.
Hvað er Alinker?
Fyrir hvern er Alinker
Alinker er fyrir alla, sérstaklega þá sem vilja koma sér af stað og vera virkir án þess að láta hreyfiskerðingu stoppa sig. Hjólið bætir upp styrk og getur verið heilsubót fyrir notandann. Hafa ber í huga að það getur tekið einhvern tíma að aðlagast Alinker.
Alinker er ekki bara hjól!
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.