Orð geta lýst heimi, en þau geta líka orðið að efninu sem heimur verður til úr. Í bókinni Auðna málar textinn ekki fullgerðar myndir heldur lætur þær kvikna í huga lesandans. Í gegnum vatn, líkama, form og umbreytingar birtist það sem erfitt er að færa í orð; það sem ýmist verður sýnilegt eða aðeins skynjað. Þannig skapast rými þar sem lesandinn mætir eigin skynjun og tekur þátt í að móta þær m…
Orð geta lýst heimi, en þau geta líka orðið að efninu sem heimur verður til úr. Í bókinni Auðna málar textinn ekki fullgerðar myndir heldur lætur þær kvikna í huga lesandans. Í gegnum vatn, líkama, form og umbreytingar birtist það sem erfitt er að færa í orð; það sem ýmist verður sýnilegt eða aðeins skynjað. Þannig skapast rými þar sem lesandinn mætir eigin skynjun og tekur þátt í að móta þær myndir sem orðin kalla fram. Lesturinn er því þátttaka ekki inntaka.
Það sem virðist kyrrt er þegar tekið
að hreyfast á leiðinni að verða annað.
Rebekka Rafnsdóttir er fædd árið 1987. Hún vinnur með ólíka miðla, einkum ritlist, kvikmyndir og ljósmyndun. Hún hefur lokið BA-prófi í ritlist og heimspeki frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í ritlist frá The New School í New York. Skrif hennar hafa birst í bókmenntatímaritunum A Public Space og HOW Journal. Árið 2017 varð hún fyrsti handhafi Bette Howland Nonfiction Prize fyrir verkið A Girl on the Hunt. Rebekka hefur einnig starfað við kennslu og stofnaði Cottonwood Reykjavík árið 2021.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.