Product image

Betri tjáning

Langar þig til að eiga auðveldara með að spjalla við fólk í fjölmenni, sér í lagi þegar þú þekkir fáa? Viltu verða betri í að halda tækifærisræður? Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á fundum? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum?

Sirrý Arnardóttir hefur um árabil aðstoðað fólk við að tjá s…

Langar þig til að eiga auðveldara með að spjalla við fólk í fjölmenni, sér í lagi þegar þú þekkir fáa? Viltu verða betri í að halda tækifærisræður? Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á fundum? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum?

Sirrý Arnardóttir hefur um árabil aðstoðað fólk við að tjá sig af meira öryggi og kennt ýmsar aðferðir sem beita má í samskiptum við ólíkar aðstæður. Þá hefur hún leiðbeint fólki um góð samskipti í rafheimum – en þar er sannarlega hægt að misstíga sig.

Í þessari aðgengilegu bók opnar Sirrý þér sannkallaða verkfærakistu sem eykur þér öryggi í samskiptum og að tjá þig við hvers kyns aðstæður. Hún byggir hér að hluta til á metsölubók sinni Örugg tjáning sem kom út árið 2013 og bætir við nýjum köflum og fjölmörgum, skemmtilegum og hagnýtum ráðum og reynslusögum .

Shop here

  • Bjartur og Veröld
    Bjartur og Veröld ehf - bókaforlag 414 1450 Vesturvör 30b, 200 Kópavogi

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.