Breka samfestingarnir eru úr mjúku og notalegu joggingkenndu efni. Virkilega þægilegir gallar sem auðvelt er að dressa upp spari eða hversdags.
Hálsmálið er með fallegum og sportlegum kraga en framstykkin víxlast í V að framan og myndast örlítil rykking við mittið sem er einkar klæðileg. Síðar og góðar ísettar ermar með svolitlu púffi og falleg vídd í baki.
Buxurnar eru eru sniðnar n…

Buxurnar eru eru sniðnar niðurþröngar með vösum til hliðar að framan og þægilegum streng en einnig eru skálmarnar með fallegum brotum að framan sem veitir svolitla auka vídd yfir magasvæðið en það getur hentað ansi mörgum mjög vel og svo eru sniðsaumar á rassi að aftan.
Síddin á þeim er einnig mjög skemmtileg og finnst okkur þessar bæði flottar með uppábroti séu þær paraðar við lága skó eða "boots" en einnig er hægt að hafa þær beinar niður.
Þessir eru flottir bæði með og án beltis!
Breka samfestingarnir eru fáanlegir í 1 (34-36) XS (hentar 38-40), S (hentar 42-44) og M (hentar 46-48/50)
Við mælum með 30°C þvotti og helst ekki nota þurrkara.
Blanda: 69%Nylon/26%Rayon/5%Spdx
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.