Deka Fiber múrblanda er hraðharðnandi, frostþolin, trefjastyrkt viðgerðarblanda. Deka Fiber rýrnar ekki. Hentar í allar viðgerðir, sérstaklega á álagsstaði þar sem mikils styrks er krafist.Efnisþörf er ca 19 kg/ferm. m.v. 10mm þykkt lag. Þykktarsvið í einni lögn er 10-40 mm. Vatnsþörf í 25 kg er 3,5-4 litrarNotkunarsviðDeka fiber múrblanda er hraðharðnandi, frostþolin trefjastyrkt viðgerðarblanda…
Deka Fiber múrblanda er hraðharðnandi, frostþolin, trefjastyrkt viðgerðarblanda. Deka Fiber rýrnar ekki. Hentar í allar viðgerðir, sérstaklega á álagsstaði þar sem mikils styrks er krafist.Efnisþörf er ca 19 kg/ferm. m.v. 10mm þykkt lag. Þykktarsvið í einni lögn er 10-40 mm. Vatnsþörf í 25 kg er 3,5-4 litrarNotkunarsviðDeka fiber múrblanda er hraðharðnandi, frostþolin trefjastyrkt viðgerðarblanda, sem rýrnar ekki. Hentar í allar viðgerðir, sérstaklega á álagsstaði.KostirÞornar á stuttum tíma, rýrnar ekki og hefur mikinn styrk.ÞykktarsviðÁ sterkt undirlag, svo sem steinsteypta fleti 10-40mmForvinnaUndirlagið skal vera hreint og laust við lausan múr, sementsslamma og önnur óhreinindi. Viðgerðarflötinn skal afmarka með því að skera með slípirokk, 10mm brún vinkilrétt á flötinn. Síðan skal hreinsa mjög vel og höggva burt alla lausa og morkna steypu. Skola skal burt öllu ryki og lausum ögnum. Gætið þess að viðgerðin sé hvergi þynnri en 10mm.Ásetning1. Hitastigið við notkun og næstu 24 klst verður að vera yfir 5°C.2. Til að tryggja viðloðun við eldri steypu þarf að bleyta sárið vel fyrir viðgerð. Við erfiðar aðstæður er gott að kústa sárið með velling/slamma.3. Hrærið saman Deka Fiber og vatni þar til úr verður blautur kústunarhæfur slammi.4. Kústið slammanum á flötinn og leggið viðgerðarblönduna í blautt sárið. Sprautið eða handleggið Deka Fiber viðgerðarefnið í 10-40mm lag. Ef lagið verður meira en 20mm þykkt þarf að setja vírnet til styrktar viðgerðinni, sem næst miðri lögninni, þó aldrei nær yfirborði en 10mm.5. Hreinsið áhöld strax með vatni.6. Við viðgerðir á köntum, tröppum og þ.h. þarf að afmarka viðgerðarsvæðið með móti. Neglið réttskeið á viðkomandi svæði og leggið að því. Fjarlægið réttskeiðina varlega þegar efnið hefur harðnað, en áður en það nær fullum styrk.Við eigum til úrval múrefna – Sjáðu hérÞú færð gæða múrvörur í Múrbúðinni