Product image

DJI Focus Pro Creator Combo

DJI
LiDAR fókus, nú aðgengilegur öllum Í fyrsta skipti kynnir DJI LiDAR fókuskerfi sem sjálfstæða vöru, sem gerir breiðum notendahópi kleift að njóta þess frelsis sem fylgir snjöllu fókuskerfi. Nýtt grip, afar fjölhæft Nýhannað DJI Focus Pro Grip er með 2 1/2 klst. aflgjafa, þægilegar skjáaðgerðir, sjálfvirka kvörðun og gagnageymslu fyrir 15 linsur, möguleika á að fjarstýra upptöku með Bluetooth og …
LiDAR fókus, nú aðgengilegur öllum Í fyrsta skipti kynnir DJI LiDAR fókuskerfi sem sjálfstæða vöru, sem gerir breiðum notendahópi kleift að njóta þess frelsis sem fylgir snjöllu fókuskerfi. Nýtt grip, afar fjölhæft Nýhannað DJI Focus Pro Grip er með 2 1/2 klst. aflgjafa, þægilegar skjáaðgerðir, sjálfvirka kvörðun og gagnageymslu fyrir 15 linsur, möguleika á að fjarstýra upptöku með Bluetooth og möguleika á upptöku í höndunum. Þannig veitir það framúrskarandi LiDAR fókusupplifun, jafnvel án Ronin-hristivarnar. Stillingar á snertiskjá, samstilling á LiDAR-sýn Gripið, með snertiskjá í fullum lit, styður stillingu á LiDAR- og mótorstillingum og getur sýnt rauntímasýn frá sjónarhorni LiDAR-kerfisins og þannig veitt myndatökufólki fullkomna meðvitund á meðan á notkun stendur. Sjálfvirk kvörðun, skilvirk og þægileg DJI Ronin appið kemur með innbyggðum linsugögnum sem hægt er að flytja inn í Focus Pro Motor með Bluetooth-tengingu við gripið. Einn mótor getur geymt gögn fyrir allt að 15 linsur. Bluetooth-tenging, þráðlaus fjarstýring Gripið getur tengst beint við spegillausar myndavélar í gegnum Bluetooth til að hefja og stöðva upptöku þráðlaust. Einnig er hægt að tengja það við DJI Ronin appið í gegnum Bluetooth til að klára kvörðun á handvirkum linsum. 2 1/2 klst. endingartími, hægt að nota á meðan er hlaðið Gripið styður 2 1/2 klst. aflgjafa fyrir LiDAR og fókusmótorinn. Það gerir stanslausa notkun möguleika á meðan hleðsla er í gangi, með PD-hraðhleðslurafhlöðum frá þriðju aðilum. Háþróað sjálfvirkt fókus, stórt skref áfram Lengri og breiðari fókusFókuslengd fyrir mannleg viðfangsefni með LiDAR er allt að 20 metrar, u.þ.b. þrefalt á við síðustu kynslóð, og höndlar tökur með aðdráttarlinsum með glæsibrag.Ofurbreitt 70° sjónsvið rúmar auðveldlega viðfangsefni á brúnunum og nærmyndir, sem eykur talsvert skapandi frelsi. Allt að 20 m fjarlægð frá mennsku viðfangsefni 70° ofurbreitt sjónsvið Nákvæmari og stöðugri fókus Nýtt LiDAR-kerfi hefur 76.800 punkta, sem er 77% aukning frá síðustu kynslóð og skerpir á getu þess til að nema mennskt viðfangsefni og dregur einnig úr fókusveiði. Þar að auki læsist fókus örugglega á viðfangsefni jafnvel þó það sé á hreyfingu, þökk sé 30 Hz LiDAR-endurnýjunartíðni. 76.800 LiDAR-punktar 30 Hz LiDAR-endurnýjunartíðni Snjallari fókus Eftirfylgni viðfangsefnis Með hjálp nýrra gervigreindarreiknirita er hægt að ná fram áreiðanlegri skynjun á fólki og farartækjum. Jafnvel þótt viðfangsefnið hverfi í smástund getur LiDAR-kerfið snögglega fest fókusinn aftur. Skipting á viðfangsefni Í aðstæðum með fleiri en eitt viðfangsefni getur fókus snögglega færst á milli þeirra. Stillanlegur fókushraði Hraði á sjálfvirkum fókus er stillanlegur og eru 5 stillingar í boði. Lægri stillingar skila sér í mýkri fókus en hærri gera hraðari og næmari fókus mögulegan. Afmarkað fókussvæði Tvær fókussvæðisstillingar, Wide og Flex Spot, eru í boði. Með Wide-stillingunni getur LiDAR-kerfið sjálfkrafa numið og fókuserað á fólk og farartæki. Með Flex Spot-stillingunni hafa notendur frelsi til að velja handvirkt hvaða viðfangsefni á að vera í fókus. Sveigjanlegar samsetningar fyrir fjölbreyttar aðstæður Focus Pro samanstendur af fjórum megineiningum: LiDAR, Motor, Grip og Hand Unit. Kvikmyndatökufólk getur sameinað þessa hluti á sveigjanlegan hátt byggt á þörfum hvers og eins.Einstaklingar geta notað sjálfvirkan LiDAR-fókus til að auka skilvirkni í tökum og tryggja að niðurstöðurnar verði framúrskarandi. Teymi geta bætt dýpt við sjónrænar frásagnir með nákvæmri fókusstýringu með Hand Unit. Focus Pro rúmar fjölbreytt svið tökuaðstæðna og kvikmyndastefna. AMF, samvinna fólks og véla Með brautryðjandi AMF-stillingu í bæði Hand Unit og Grip setur DJI Focus Pro nýjan staðal hvað varðar samvinnu fólks og véla hvað varðar fókusstýringu og uppfyllir ýmsar fjölbreyttar skapandi þarfir. Fókus sem þú finnur fyrir Með AMF-stillingunni snýst fremri skífan á gripinu (eða fókusskífan á Hand Unit) á meðan sjálfvirki fókusinn verkar. Það gerir kvikmyndatökufólki kleift að fylgjast bæði með fókusnum á skjánum og sjá hvernig hann verkar í gegnum skynræna svörun, sem gerir skjótar ákvarðanir um hvenær skal skerast í leikinn mögulegar. Skipting milli handvirks og sjálfvirks fókuss á millisekúndum Fókusstýring er alltaf í þínum höndum. Með AMF-stillingu virka er hægt að virkja og afvirkja handvirka fókusstýringu á fáeinum millisekúndum. Það fangar ekki aðeins meiningu myndatökufólksins með nákvæmum hætti heldur bætir einnig skilvirkni á setti með því að fækka truflunum sem verða vegna skiptingar á fókusstillingu. Kvikur fókus, það besta úr báðum heimum Brautryðjandi AMF-eiginleikinn veitir ótakmarkaðan fjölda skapandi möguleika. Með AMF-stillingunni, LiDAR og mannlegum afskiptum verður til fókusupplifun sem er jafn fáguð og kvik og hún er skilvirk og þægileg. Um er að ræða samfellda upplfiun sem sameinar kraft og áreiðanleika tækninnar og innsæi og sköpun mannfólksins.S

Shop here

  • DJI Store Reykjavík Drónaverslun 519 4747 Lækjargötu 2a, 101 Reykjavík

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.