Handhæg og öflug dæla og skammtari fyrir íblöndunarefni sem er auðveld í uppsetningu og mælst hefur vel fyrir hjá íslenskum bændum. Dælan kemur með 100 eða 200 L forðatanki, er rafstýrð og einföld í allri notkun. Rafstýrð Dosistar V hliðræn flæðistýring býður upp á nákvæma stjórnun innan úr vél. "Pick-up" rofi fylgir sem staðsetja má til að slökkva og kveikja á dælingu eftir stöðu sópvindunn…
Handhæg og öflug dæla og skammtari fyrir íblöndunarefni sem er auðveld í uppsetningu og mælst hefur vel fyrir hjá íslenskum bændum. Dælan kemur með 100 eða 200 L forðatanki, er rafstýrð og einföld í allri notkun. Rafstýrð Dosistar V hliðræn flæðistýring býður upp á nákvæma stjórnun innan úr vél. "Pick-up" rofi fylgir sem staðsetja má til að slökkva og kveikja á dælingu eftir stöðu sópvindunnar.
DSG dælan getur afkastað að hámarki 150 lítrum á klukkustund. Með stillanlegri flæðistýringu má ná hámarksnýtingu á verðmæt íblöndunarefni og dreifing þeirra í slægjunni verður mun nákvæmari og jafnari.
DSG dælunni má koma fyrir á rúlluvélum og hleðsluvögnum en einnig má setja hana á fóðurblandara og nota með efnum sem draga úr hitamyndun í heilfóðri.
Dælubúnaðurinn og forðatankurinn koma sambyggð á blikkstandi með lóðréttri, gataðri festiplötu sem býður upp á fjölbreytta festimöguleika, hvort sem er við rúlluvél/samstæðu, hleðsluvagn eða annað.
Sjá ítarlegri upplýsingar í handbók fyrir DSG 100
.
DSG 100 og 200 dælan eru að öllu leyti eins hvað varðar íhluti og dælubúnaðinn nema hvað forðatankurinn er misstór.
Allir helstu varahlutir til á lager: Lok á forðatank, pick-up rofi, úðaspíssar, hné, síur o.fl. Rafmagnsdælur er hægt að panta með stuttum fyrirvara. Einnig hægt að fá bara vökvalagnir og úðunarkerfi ásamt auka pick up rofa sem býður upp á að færa DSG dæluna milli véla, en þarf að sérpanta.
Hægt er að fá sértilboð í búnaðinn með stærri 300 lítra forðatanki. Afgreiðslufrestur getur verið 4-6 vikur.
Lífland hefur flutt DSG dælurnar inn um árabil og sístækkandi hópur ánægðra eigenda ber því vitni að hér er á ferðinni búnaður sem skilar sínu. Þar spilar líka inn í lág bilanatíðni ásamt einfaldleika í uppsetningu og notkun.
Leitið til söludeildar Líflands í s. 540-1100 eða sala@lifland.is fyrir nánari upplýsingar.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.