Yndislega sætt eyrnaband, hannað af Arndísi Arnalds í tilefni Bleiks októbers 2021. Fljótprjónað en ef til vill einnig tækifæri til þess að læra nýja tækni því munstrið er saumað út í það jafn óðum og prjónað er. Sýnishornið er prjónað úr litnum Eir en sá litur er einnig hannaður í tilefni Bleiks októbers, nafnið Eir á sérlega vel við þar sem Eir er nafn lækningagyðju, og litnum Tilgangurinn. Ga…
Yndislega sætt eyrnaband, hannað af Arndísi Arnalds í tilefni Bleiks októbers 2021. Fljótprjónað en ef til vill einnig tækifæri til þess að læra nýja tækni því munstrið er saumað út í það jafn óðum og prjónað er. Sýnishornið er prjónað úr litnum Eir en sá litur er einnig hannaður í tilefni Bleiks októbers, nafnið Eir á sérlega vel við þar sem Eir er nafn lækningagyðju, og litnum Tilgangurinn. Garn: Hvaða garn sem er sem er í dk grófleika, sem dæmi mætti nota Merino DK , Merino Nylon DK , Tweed DK eða True Merino DK Litir: Þú þarft tvo liti. Sýnishornið er prjónað úr Eir (ljósbleiki liturinn) og Tilgangurinn (dekkri liturinn) Prjónastærð: númer 4.5mm eða sú stærð sem þú nærð prjónfestu með. Áhöld: frágangsnál Prjónfesta: 24L yfir 10cm, garðaprjón Stærðir: barna og fullorðins