Frábær sjónauki fyrir náttúru og fuglaskoðun
Focus Observer 8×42 ED er fjölhæfur sjónauki sem hentar einstaklega vel fyrir fuglaskoðun, náttúruskoðun, veiðar og almenna útivist. Samsetning 8x stækkunar og 42 mm linsa skilar björtu og stöðugu útsýni með breiðu sjónsviði sem auðveldar að fylgjast með fuglum, dýrum og öðrum hreyfanlegum viðfangsefnum.
ED gler fyrir meiri skerpu og ná…

ED gler fyrir meiri skerpu og náttúrulega liti
Sjónaukinn er búinn ED gleri (Extra-low Dispersion) sem minnkar litaskekkju og skilar skýrari mynd með nákvæmari litum. Phase-corrected BaK-4 prismur ásamt FMC fjölhúðun auka ljóssendingu og contrast, sem gerir myndina bjarta og skarpa jafnvel við dögun, rökkur eða í dimmari veðuraðstæðum.
Hannaður fyrir íslenskar aðstæður
Focus Observer ED er byggður með sterkri og léttri álbyggingu ásamt slitsterkri gúmmíhúð sem tryggir gott grip og aukna endingu. Vatnsfráhrindandi húðun á linsunum hjálpar til við að halda sjónsviðinu hreinu í rigningu og raka, sem gerir sjónaukann afar hentugan fyrir íslenska náttúru og útivist.
Þægilegur í notkun
Stórt fókus-hjól gerir fókusstillingar hraðar og þægilegar – jafnvel með hanska. Snúanleg eyecups tryggja þægilega notkun bæði fyrir gleraugnanotendur og aðra.
Björt mynd í lítilli birtu
42 mm frontlinsur safna miklu ljósi sem skilar bjartari mynd og meiri smáatriðum þegar birtan minnkar. Þetta gerir Focus Observer 8×42 ED sérstaklega góðan kost fyrir fuglaskoðun, veiðar og náttúruskoðun snemma morguns eða síðla kvölds.
Í kassanum
Focus Observer 8×42 ED sjónauki
Verndartaska
Bólstraður hálsól
Linsulok fyrir augn- og frontlinsur
Linsuklútur
Handbók
Ábyrgð
Focus Observer 8×42 ED kemur með 10 ára ábyrgð frá framleiðanda.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.