Ispirazione Venezia er milt kaffi með góðri fyllingu og fíngerðum ilmi sem minnir á nýristaðar kaffibaunir og árdaga ítalskra kaffiviðskipta. Létt ristunin viðheldur fáguðum bragðtónum sem falla saman við bragðmikinn grunninn. Í Feneyjum er ekki hægt að láta fínlegan kornkeiminn og vott af sætri karamellu, sem öllum finnst ljúf, fram hjá …
Ispirazione Venezia er milt kaffi með góðri fyllingu og fíngerðum ilmi sem minnir á nýristaðar kaffibaunir og árdaga ítalskra kaffiviðskipta. Létt ristunin viðheldur fáguðum bragðtónum sem falla saman við bragðmikinn grunninn. Í Feneyjum er ekki hægt að láta fínlegan kornkeiminn og vott af sætri karamellu, sem öllum finnst ljúf, fram hjá sér fara.
Við vildum halda á lofti einstökum uppruna með því að búa til Ispirazione Venezia . Þær kaffibaunir sem hvað mest er flutt inn af til Ítalíu eru Arabica -baunir frá Brasilíu þannig að þær voru útgangspunkturinn. Í þennan grunn var blandað gæða Arabica -kaffibaunum, sem eru ræktaðar í mikilli hæð í Mið og Rómönsku -Ameríku, með malt- og ávaxtakenndu bragði sem springur dásamlega út þegar baunirnar eru ristaðar. Að lokum var nokkrum skoluðum Robusta -baunum frá Afríku bætt við sem bragðauka. Afraksturinn verður fíngert kaffi með góðri fyllingu, í samræmi við feneyska hefð.
Ekki aðeins eru
kaffibruggarar
í þessari norðurítölsku borg leiknir í kaffiblöndun heldur líka ristunaraðferðum.
Kaffi er oft léttristað á norðanverðri Ítalíu.
Þess vegna eru baunirnar í
Ispirazione
Venezia
meðalristaðar, sem er minni ristun en viðgengst í suðurhlutanum, en er samt nógu dökk.
Þessi ristunaraðferð gefur
Ispirazione
Venezia
fyllingu í bragði og mildan sýrukeim ásamt örlitlum votti af beiskju.
INNIHALD OG OFNÆMISVALDAR
Inniheldur:
10 hylki af
Ispirazione Venezia
með ristuðu
og möluðu kaffi fyrir NESPRESSO kerfið. Arabica og Robusta kaffibaunir.
Pakkað í vernduðu umhverfi.
Nettóþyngd:
56g - 1.97 oz
Framleitt í Swiss:
Nestlé Nespresso S.A. Av.d'Ouchy 4-6. CH - 1006 Lausanne. Switzerland
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.