Leica Noctivid 10x42 eru meðal bestu sjónauka sem Leica hefur framleitt og eru hannaðir fyrir þá sem vilja hæstu mögulegu myndgæði í nettum og sterkbyggðum sjónauka. Með 10x stækkun og 42mm linsum bjóða þeir upp á mjög góða blöndu af nákvæmni, birtu og þægindum fyrir bæði dagsbirtu og erfið birtuskilyrði.
Leica notar SCHOTT High Transmission gler ásamt HighLux húðunarkerfi sem hjálpar til vi…
Leica Noctivid 10x42 eru meðal bestu sjónauka sem Leica hefur framleitt og eru hannaðir fyrir þá sem vilja hæstu mögulegu myndgæði í nettum og sterkbyggðum sjónauka. Með 10x stækkun og 42mm linsum bjóða þeir upp á mjög góða blöndu af nákvæmni, birtu og þægindum fyrir bæði dagsbirtu og erfið birtuskilyrði.
Leica notar SCHOTT High Transmission gler ásamt HighLux húðunarkerfi sem hjálpar til við að skila einstaklega skörpum myndum með náttúrulegum litum, miklu contrasti og mjög góðri stjórn á flakki ljóss og glampa. Þetta gerir Noctivid sérstaklega sterka fyrir fuglaskoðun, fjallgöngur, veiðar, náttúruskoðun og ferðalög þar sem smáatriði skipta miklu máli.
Magnesium húsið er bæði létt og mjög sterkt, með sérstakri gúmmíáferð sem gefur gott grip í köldum og blautum aðstæðum. Sjónaukarnir eru vatnsheldir niður á 5 metra og nitrogen fylltir til að koma í veg fyrir móðu innan í glerinu, sem hentar mjög vel fyrir íslenskar aðstæður og breytilegt veður.
10x stækkunin hjálpar notandanum að sjá meiri smáatriði á löngu færi, hvort sem um er að ræða fugla, dýralíf eða landslag. Jafnvægið í hönnuninni og mjúkur fókushringur gera þá einnig mjög þægilega í lengri notkun.
Hentar vel fyrirThe information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.