Fóðrið er orkuríkt, með hátt hlutfall meltanlegs trénis en jafnframt lágt sykurinnihald
Protexin góðgerlar
Pavo Ease&Excel inniheldur Protexin, góðgerla og góðgerlabæti, sem ætlað er að styðja við starfsemi smágirnis, botnlanga og víðgirnis. Protexin er einstæð blanda af náttúrulegum efnum sem draga úr sýringu. Fóðrið inniheldur einnig betaglúkana, arabískt gúmmí, góðg…
Fóðrið er orkuríkt, með hátt hlutfall meltanlegs trénis en jafnframt lágt sykurinnihald
Protexin góðgerlar
Pavo Ease&Excel inniheldur Protexin, góðgerla og góðgerlabæti, sem ætlað er að styðja við starfsemi smágirnis, botnlanga og víðgirnis. Protexin er einstæð blanda af náttúrulegum efnum sem draga úr sýringu. Fóðrið inniheldur einnig betaglúkana, arabískt gúmmí, góðgerla og góðgerlabætandi efni. Meðal efna sem draga úr sýringu eru kalsíum og magnesíum. Þessi efni hlutleysa sýru á meðan arabískt gúmmí styður við almennt heilbrigði meltingarvegar og verndar veggi hans. Protexin leggur til góðgerla og góðgerlabætandi efni sem samhliða öðrum þáttum styðja viðgang hagstæðra baktería í botnlanga og víðgirni, og leggur þar með grunninn fyrir heilbrigða iðraflóru.
Helstu eiginleikar
Hvaða hestar hafa gagn af Pavo Ease&Excel?
Fóðrun
Samhliða Pavo Ease&Excel skal tryggja aðgengi að góðu gróffóðri til að ná hámarksárangri. Miðið við að þurrefni gróffóðurs sé a.m.k. 1,5% af lífþunga og deilið því magni á eins margar gjafir á sólarhring og hægt er. Ávallt skal tryggja aðgengi að vatni.
Ráðlagður skammtur/dag fyrir hest á hver 100 kg lífþunga:
Í miðlungsmikilli brúkun: 0,45 kg
Í mikilli brúkun: 0,6 kg
Í keppnis- og kynbótaþjálfun: 1,0 kg
Innihald: Sojahýði*, hafraklíð, refasmári, sojaolía*, sykurrófuhrat, hveiti, sojabaunir (pressaðar og ristaðar)*, reyrmelassi, hörfræ, hveitifóður, díkalsíumfosfat, kalsíumkarbónat, natríumklóríð, Protexin góðgerlar (Beta-glúkanar (0,15 mg/kg), magnesíum karbónat, frúktó-ólígósakkaríð, akasía, Saccharomyces cerevisiae NCYS Sc47 (1 x10 9 cfu/kg)).
Greiningarþættir: Orka 13 MJ/kg. Hráprótein 13,0%, hráfita 10,5%, hrátréni 18,0%, hráaska 8,0%, sykur 6,0%, sterkja 8%, kalsíum 1,2%, fosfór 0,6%, natríum 0,3%, magnesíum 0,4%.
Aukefni (á kg): Vítamín: A-vítamín (3a603) 13.000 AE, D3-vítamín (3a671) 1.300 AE, B1-vítamín 24 mg, B2 vítamín, 12 mg, B6-vítamín, 2 mg, B12-vítamín 70 μg, C-vítamín 180 mg, E-vítamín (3a700) 375 mg, kólín 390 mg, fólín 7 mg, níasín 26 mg.
Snefilefni: Kopar (3b405, 3b406) 65 mg, járn (3b103) 65 mg, sink (3b603, 3b605) 150 mg, mangan (3b502, 3b505) 55 mg, kóbalt (3b304) 1,0 mg, selen (3b8.11) 0,6 mg, joð (3b202) 1,2 mg.
*Framleitt úr erfðabreyttum sojabaunum.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.