Pavo EasyPower er sérþróað múslífóður fyrir íslenska hesta sem þurfa að skila árangri. Það leggur til orkuna og úthaldið ásamt stuðningi við vöðva sem þarf til góðrar frammistöðu. Hátt hlutfall vítamína og steinefna tryggir að daglegur skammtur er tiltölulega lítill sem hentar íslenska hestinum vel.
Orkan sem Pavo EasyPower leggur til er sót…
Pavo EasyPower er sérþróað múslífóður fyrir íslenska hesta sem þurfa að skila árangri. Það leggur til orkuna og úthaldið ásamt stuðningi við vöðva sem þarf til góðrar frammistöðu. Hátt hlutfall vítamína og steinefna tryggir að daglegur skammtur er tiltölulega lítill sem hentar íslenska hestinum vel.
Orkan sem Pavo EasyPower leggur til er sótt í einstæða blöndu þaninna korntegunda fyrir hraða orku og kraft, auk hæglosaðrar orku sem sótt er í fitur og trefjar fyrir úthald og þrautseigju.
Lykilorkugjafi í Pavo EasyPower er hrísklíð sem inniheldur hátt hlutfall hæglosaðrar orku samhliða háu hlutfalli annarra trefja og olía sem leggja einnig til orkuna. Þessi samsetning minnkar hitamyndun og óviðráðanlega orku en leggur til það sem þarf til að skara fram úr.
Hraðlosuð orka er einnig mikilvæg þegar kemur að æfingum eða keppnum þar sem unnið er af ákefð á t.d. skeiði eða hröðu tölti. Í Pavo EasyPower er að finna kolvetni sem koma úr þöndu kornmeti. Þanið korn hefur háan meltanleika sem gefur mikla orku án þess að leiða til offóðrunar.
Prótein er nauðsynlegt til viðhalds og uppbyggingar vöðva og styður við heilbrigða virkni þeirra. Vöðvastyrkur og virkni er lykilatriði þegar kemur að góðri frammistöðu og með háum próteinstyrk veitir Pavo EasyPower þann stuðning sem til þarf.
Hátt hlutfall próteina eykur framboð brennisteins og próteinstyrkurinn í Pavo EasyPower leggur til þann brennistein sem hesturinn þarfnast.
Íslenskir hestar þurfa minna kjarnfóður en mörg önnur hestakyn sem getur valdið ójafnvægi í fóðrun þegar horft er til vítamína og steinefna. Styrkur vítamína og steinefna í Pavo EasyPower er hár sem minnkar skammtastærðir en uppfyllir um leið daglegar þarfir hestsins. Ráðlagðar skammtastærðir eru af þessum sökum tiltölulega lágar og hægt er að halda orkugjöfinni í betra jafnvægi.
Meðalþjálfun 1,0 kg / dag / Mikil þjálfun 1,3 kg / dag
Kemur í 15 kg pokum.
Samsetning: Refasmári, hveitifóður, spelthýði, hrísklíð, sojamjöl (ristað), reyrmelassi, hafrar, þanið bygg, sólblómafræmjöl, hveiti, bygg, sojabaunaflögur, þaninn maís, natríumklóríð, hörfræolía, sojaolía (óerfðabreytt), sólblómafræ, hröfræ, magnesíumoxíð, ertuflögur, gulrótarflögur, kalsíumkarbónat, hveitiklíð, kaffifífilsrótarhrat, ölger, CellProtect andoxandi blanda (0,003%).
Greiningarþættir: Hráprótein 14,3%, hráfita 8,3%, hrátréni 13,0%, aska, 10,10%, sykur 5,7%, sterkja 18,00%, kalsíum 0,69%, fosfór 0,52%, natríum 0,90%, kalí 1,22%, magnesíum 0,96%, lýsín 6,3%, meþíónín 2,2%, þreónín 5,0%, Omega-3 14,5 g/kg, Omega-6 27,8 g/kg.
Aukefni pr. kg: Vítamín: A-vítamín 21.210 AE, D-vítamín 3.535 AE, E-vítamín 497 mg, E-vítamín 497 mg, K3-vítamín 5 mg, B1-vítamín 53 mg, B2-vítamín 21 mg, níasínamíð 42 mg, pantóþensýra 29 mg, B6-vítamín 14 mg, D-bíótín 742 μg, fólínsýra 11 mg. Snefilefni: Kopar 91 mg, járn 168 mg, sink 364 mg, mangan 231 mg, selen 1,1 mg, joð 1,4 mg.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.