Product image

Pavo GutHealth

Fóðurbætir fyrir hesta með meltingavandamál eða eru með viðkvæman maga. Einnig gott að nota ef snöggar breytingar verða á fæðuvali, eins og þegar hestum er sleppt á haga eða teknir á hús. Gott til að hjálpa til í streituvaldandi aðstæðum. Pavo GutHealth hjálpar til við að koma jafnvægi á meltinguna. Inniheldur góðgerla sem hjálpa til við meltinguna og gera óæskilegum bakteríum erfitt fyrir…

Fóðurbætir fyrir hesta með meltingavandamál eða eru með viðkvæman maga. Einnig gott að nota ef snöggar breytingar verða á fæðuvali, eins og þegar hestum er sleppt á haga eða teknir á hús. Gott til að hjálpa til í streituvaldandi aðstæðum. Pavo GutHealth hjálpar til við að koma jafnvægi á meltinguna. Inniheldur góðgerla sem hjálpa til við meltinguna og gera óæskilegum bakteríum erfitt fyrir að setjast að í meltingarvegi hestsins.

Frá náttúrunnar hendi hafa hestar mjög viðkvæman meltingarveg. Það þýðir að breytingar í fóðrun, t.d. þegar hestum er sleppt eða þeir teknir aftur á hús, getur breytingin í fóðrun valdið meltingarvandamálum. Streita sem orsakast af breytingum, t.d. ef þeir eru fluttir milli hesthúsa, eða ef þarf að framkvæma aðgerð á þeim getur einnig valdið því að vandamál koma upp í meltingu. Meltingarvandamál tengjast oft á tíðum ójafnvægi í þarmaflóru hestsins sem veldur því að hesturinn getur ekki melt fóðrið eins vel og hann ætti að geta. Þetta getur leitt til þess að ójafnvægi verður í slímhimnum, hesturinn fær niðurgang, magakrampa og önnur meltingavandamál.

Pavo GutHealthvar sérstaklega þróað til að styðja við heilbrigða meltingarstarfsemi hestsins með því að koma jafnvægi á góðgerlaflóruna í meltingaveginum. Inniheldur 100% náttúruleg efni sem tryggir að æskilegir gerlar í smáþörmum og ristli fái hámarks stuðning til að hindra aðgang óæskilegra baktería að meltingarvegi hestsins. GutHealth inniheldur eplahrat og sykurrófuhrat , sem auka bindingu vatns í meltingarveginum og verja innra byrði þarmanna. Bygggras inniheldur mikið af nauðsynlegum vítamínum, steinefnum og afoxandi efnum sem tryggja jákvæð áhrif á ónæmiskerfi þarmanna. Brenninetla er þekkt fyrir eiginleika sem hreinsa blóðið og hjálpa til við að koma í veg fyrir sýkingar. Oreganó olían í fóðrinu gerir það lystugt en olían er bakteríudrepandi og hefur því ákveðna sótthreinsieiginleika. Fóðrið inniheldur líka Diamond V og inúlín sem ýta undir starfssemi góðgerlanna sem og CellProtect sem fangar óæskilegar oxandi sameindir (sindurefni) í líkama hestsins og hlutleysir þær.

Ráðlagður dagsskammtur fyrir hver 100 kg lífþunga: um 42 g (125g fyrir 300 kg hest, 250 gr á dag fyrir 600 kg hest). Hámark 2 kg á 600 kg dýr á dag.

Greiningarþættir: Hráprótein 11,2%; hráfita 6,8%; hrátréni 17,8%; hráaska 11,0%; sykur 7,7%; sterkja 7,9%; orka 6,1MJ; kalsíum (Ca) 1,6%; fosfór (P) 0,3%; natríum (Na) 0,18%; kalíum (K) 1,3%; magnesíum (Mg) 0,13%, sink (Zn) 960 mg.

Innihald: Refasmári (alfalfa), Rúgklíð, sykurrófuhrat, eplahrat, bygggras, kalsíumkarbónat, brenninetla, inúlín, mysuprótein, ger, sojaolía óerfðabreytt, þrúgusykur, Saccharomyces cerevisiae CNCM I-1077 .

Nettóþyngd: 7,5 kg.

Shop here

  • Lífland ehf - skrifstofur 540 1100 Multiple locations

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.