Sage Barista Express Impress sameinar innbyggða kaffikvörn og handvirka espressógerð með sjálfvirkri aðstoð við skömmtun og þjöppun. Vélin malar kaffibaunirnar beint í 54 mm portafilterinn, metur kaffimagnið og leiðbeinir þér að réttum skammti.
Impress™ Puck System
Impress™ Puck System einfaldar undirbúning kaffisins með snjallri skömmtun og aðstoð við þjöppun. Kerfið lagar skammtinn út frá fyrri mölun, en innbyggði þjapparinn beitir 10 kg þrýstingi og lýkur þjöppuninni með 7° snúningi til að mynda jafnt yfirborð.
Nýmalað kaffi fyrir hvern bolla
Innbyggð keilukvörn úr stáli býður upp á 25 mölunarstillingar. Þannig má fínstilla mölunina eftir kaffibaunum og smekk, en kaffið er malað beint í portafilterinn til að einfalda vinnuferlið.
Nákvæmur espresso-útdráttur
Thermocoil-hitakerfið og PID-hitastýringin halda vatnshitanum stöðugum við útdrátt. Kaffið er fyrst vætt við lágan þrýsting og síðan dregið út við 9 bara þrýsting. Þrýstimælirinn sýnir þrýstinginn meðan á útdrætti stendur og hjálpar þér að fylgjast með ferlinu.
54 mm portafilter
Portafilterinn úr ryðfríu stáli er hannaður fyrir 18 g skammt af nýmöluðu kaffi. Með vélinni fylgja síukörfur fyrir einn og tvo bolla, bæði fyrir nýmalaðar baunir og formalað kaffi.
Handvirk mjólkurfroða
Gufustúturinn gerir þér kleift að stjórna hita og áferð mjólkurinnar handvirkt. Með réttri tækni má útbúa silkimjúka örfroðu fyrir latte, flat white og cappuccino, ásamt froðu sem hentar fyrir latte-list.
Hagnýt við daglega notkun
Vélin er með tveggja lítra vatnstank, 250 g baunahólf og sérstakan heitavatnsstút. Meðal fylgihluta eru 480 ml mjólkurkanna úr ryðfríu stáli, Razor™-skömmtunartól, vatnssía og áhöld fyrir þrif og viðhald.