Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareig…
Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.
Árið 1969 þróuðu Sailor fyrsta 21 kt. gulloddinn í japan sem er af mörgum talinn einn besti blekoddur sem hefur verið framleiddur í heiminum, enda á mýkt hans og nákvæmi sér enga hliðsvæðu.
Sailor 1911 Standard Demonstrator er skemmtilegur penni frá Sailor þar sem allt er til sýnis. Penninn er glær þannig hægt er að sjá alla galdrana á bakvið góðan blekpenna og eins verður þú aldrei í vafa hvaða blek þú ert með í pennanum. Penninn er með 21 kt. gull oddi.
Penninn er svartur með gyllingu. Fullkomlega klasísk og tímalaus hönnun frá Japan. Pennin er með innbyggðri blekpumpu til að draga upp blek.
Penninn er 14,1cm langur og 21,4 grömm. Hægt er að velja um stærð oddar. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)
Penninn kemur í fallegri Sailor gjafaöskju.
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.