***EINUNGIS FÁANLEG Í SÉRPÖNTUN***
Home Box hleðslustöðin er nú fáanleg með snjall-hnappi sem opnar hleðslu lúguna á bílnum þínum. Í stað þess að opna lúguna innan úr bílnum nægir að bera hleðslutengið upp að bílnum og ýta á snjall hnappinn. Til að fjarlægja er stutt á hnappinn til að losa tengið. Stöðinni fylgir snúra með tengi af gerð 2 og Tesla snjall hnappi. Hægt er að velja um beina s…
***EINUNGIS FÁANLEG Í SÉRPÖNTUN***
Home Box hleðslustöðin er nú fáanleg með snjall-hnappi sem opnar hleðslu lúguna á bílnum þínum. Í stað þess að opna lúguna innan úr bílnum nægir að bera hleðslutengið upp að bílnum og ýta á snjall hnappinn. Til að fjarlægja er stutt á hnappinn til að losa tengið. Stöðinni fylgir snúra með tengi af gerð 2 og Tesla snjall hnappi. Hægt er að velja um beina snúru eða gormasnúru.
- Endurgreiðsla á VSK
Til þess að hvetja til orkuskipta hafa stjórnvöld ákveðið að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á hleðslustöðvum. Ennfremur fellur uppsetning þeirra undir „Allir Vinna“ átakið og má því einnig sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við uppsetningu (sjá nánar hér).
- Uppsetning
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af uppsetningunni
Við höfum á okkar snærum fagmenn með reynslu og þekkingu á uppsetningu heimahleðslustöðva. Hægt er að ganga frá kaupum á uppsetningu hér á síðunni . Að því loknu verður haft samband við þig innan 2 virkra daga og stöðin komin upp svo fljótt sem unnt er. Eftir eðli og umfangi verkefnisins getur einhver auka kostnaður fallið til við verkið. Rafverktakinn mun gera grein fyrir því fyrirfram svo ekkert komi á óvart.
Athugið að uppsetning hleðslustöðvar þarf að kaupa sér, hægt er að kaupa uppsetningu á hleðslustöð með því að smella Hér
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú ert með einhverjar spurningar í síma 511-1116 eða hledslan@hledslan.is
The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.