Product image

Timeout stóll XL svört eik/Evita svart- svart ál

Conform,Timeout
Margar af þörfum mannverunar eru breytilegar, en góð hvíld er og mun alltaf vera ein af grunnþörfunum. Þetta hafði norski hönnuðurinn Jahn Aamodt að leiðarljósi þegar hann hannaði Timeout hægindastólana. Timeout er ein af þeim vörulínum sem við erum hvað stoltust af. Hönnunin er tímalaus og samanstendur af fáguðum og vel mótuðum línum sem eiga heima inni á hvaða heimili sem er. Hægt er að halla b…
Margar af þörfum mannverunar eru breytilegar, en góð hvíld er og mun alltaf vera ein af grunnþörfunum. Þetta hafði norski hönnuðurinn Jahn Aamodt að leiðarljósi þegar hann hannaði Timeout hægindastólana. Timeout er ein af þeim vörulínum sem við erum hvað stoltust af. Hönnunin er tímalaus og samanstendur af fáguðum og vel mótuðum línum sem eiga heima inni á hvaða heimili sem er. Hægt er að halla bakinu, stilla höfuðpúðann og stóllinn er á snúningsfæti sem núllstillir sig sjálfkrafa þegar staðið er upp.Hægindastólarnir eru virkilega vönduð húsgögn og eru þeir smíðaðir af fyrirtækinu Conform í Småland héraðinu í Svíþjóð. Í stólana er einungis notað fyrsta flokks timbur, þá helst eik og hnota, og áklæðin ásamt svampinum eru öll OEKO-TEX vottuð hráefni. Conform leggur mikla áherslu á sjálfbærni og að halda kolefnisspori sínu í algjöru lágmarki og eru því allir afgangar úr framleiðslu stólana endurnýttir eða endurunnir.Stólana er hægt að sérpanta algjörlega eftir höfði hvers og eins. Þeir eru fáanlegir í tugum mismunandi áklæða hvort sem það er leður eða tau. Hægt er að velja um hnotu eða eik í skelina, eða láta bólstra hana í sama áklæði og stóllinn. Fæturnir geta síðan verið úr áli (lituðu eða ekki) eða klætt með sama við og í skelinni. Fótskemlar fyrir hægindastólana eru síðan seldir sér, en Timeout er hinsvegar einnig fáanlegur með innbyggðum útskjótanlegum fótskemli. Að lokum er Timeout fáanlegur í stærri (XL) útgáfu þar sem sethæðin er hærri.Þú getur sett saman þinn eigin Timeout hér á heimasíðu Conform, en til að sérpanta þarf svo að hafa samband við verslun.

Shop here

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.