Útieldstæðið verður falleg viðbót í garðinn eða á pallinn, það skapar notalegt andrúmsloft útivið og heldur á þér hita þegar kólnar á kvöldin. Eldstæðið er úr stáli sem tekur í sig hita og endurvarpar út í rýmið. Eldurinn sést vel í gegnum möskvahlíf, sem eykur öryggi og kemur í veg fyrir að neistar og rusl berist frá eldstæðinu. Auðvelt er að færa hlífina til með málmhring að ofanverðu. Hægt er …
Útieldstæðið verður falleg viðbót í garðinn eða á pallinn, það skapar notalegt andrúmsloft útivið og heldur á þér hita þegar kólnar á kvöldin. Eldstæðið er úr stáli sem tekur í sig hita og endurvarpar út í rýmið. Eldurinn sést vel í gegnum möskvahlíf, sem eykur öryggi og kemur í veg fyrir að neistar og rusl berist frá eldstæðinu. Auðvelt er að færa hlífina til með málmhring að ofanverðu. Hægt er að nota skörunginn bæði til að fjarlægja möskvahlífina og skara í eldinn. Eldstæðið er rúmgott og þegar það er ekki í notkun má nota það sem ískistu fyrir drykkjarföng. Mikilvægt: Aðeins til notkunar utandyra. Ekki snerta vöruna þegar viður brennur í henni eða stuttu eftir að eldur hefur slokknað.