Product image

Weber REP 980 steiningarlím og filtunarmúr, Grátt (Maxim), 5Kg

Weber
REP 980 er hágæða steiningarlím og filtunarmúr. REP 980 er einnig notað til smærri viðgerða, yfir viðgerðir, á svalir og tröppur og einnig sem kústunarefni þegar þörf er á að fríska upp á útlit.Efnisþörf fer eftir notkun. Ef blandað er 4-4,5l af vatni í pokann fást ca 14 lítrar af múrblöndu, sem þýðir ca 1,8 kg á fermeter m.v. 1 mm þykkt lag. Ef blandað er 6-6,5 lítrar í pokann ( til kústunar) fá…
REP 980 er hágæða steiningarlím og filtunarmúr. REP 980 er einnig notað til smærri viðgerða, yfir viðgerðir, á svalir og tröppur og einnig sem kústunarefni þegar þörf er á að fríska upp á útlit.Efnisþörf fer eftir notkun. Ef blandað er 4-4,5l af vatni í pokann fást ca 14 lítrar af múrblöndu, sem þýðir ca 1,8 kg á fermeter m.v. 1 mm þykkt lag. Ef blandað er 6-6,5 lítrar í pokann ( til kústunar) fást ca 16 lítrar af múrblöndu. Fer þá efnisþörf eftir hversu þykkt er kústað og hvað margar umferðir. Þykktarsvið 2-3 mm (má fara í allt að 20 mm í holufyllingum). Umbúðir eru 25 kg poki. Vatnsþörf í 25 kg poka er 4-4,5L í filtun, steiningu og viðgerðir, en 6-6,5L ef nota á múrblönduna til kústunar.NotkunarsviðREP 980 múrefni er til vatnsþéttingar, verndunar og minni viðgerða á múr og steinsteypu t.d.:- á svalargólf, stéttar og aðra lárétta fleti.- á múraða fleti eftir viðgerðir.- á grunna, brýr, steyptar einingar og önnur mannvirki.- sem límingarefni fyrir steiningu.- sem límingarefni undir vatnsbretti.- til flísalagna og fúgunar.KostirREP 980 er gufuopið, vatnsþétt og frostþolið sementsbundið efni sérstaklega ætlað til fíltunar kústunar og í smærri viðgerðir í lagþykkt 0-10 mm. REP 980 hefur mjög góða viðloðun við undirlagið og ver steypu gegn mengun af völdum útblásturs bifreiða.Þykktarsvið0- 10 mmMá fara í 20 mm í holu eða sprungufyllingum.EiginleikarVatnsmagn í 25 kg poka:Til viðgerða : 4,5 - 5 lítrar (ca 14L af múrblöndu)Til kústunar: 6-7 lítrar (ca 16L af múrblöndu)NotkunartímiTil viðgerða: 30 - 45 mín.Til kústunar: 1-2 tímar.Frostþolið samkvæmt staðli SS 137244UndirvinnaViðgerðarflöturinn skal vera hreinn og laus við alla lausa og morknaða steypu. Skola skal burtu öllu ryki og lausum múr.GrunnurGrunna skal flötinn með Weber Floor 4716 grunni. (1 hluti grunnur og 3 hlutar vatn.)Á járnfleti og steypurstyrktarjárn er mælt með meðhöndlun með REP 05.Til viðgerða1. Setja skal 4,5-5 lítra af vatni í hræriílátið.2. Hellið úr 1 poka af REP 980 meðan hrært er. Mælt er með að nota hæggenga borvél. Hræra skal í 2-3 mín. eða þangað til allir kekkir eru farnir. Látið síðan standa í ca 5 mín. og hrærið aftur í 1. mín. fyrir notkun.Til kústunar: Eftir að búið er að hræra eins og að ofan greinir, þá skal bæta í blönduna 1-2 lítrum af vatni. Þá er efnið tilbúið til kústunar.3. Mælt er með að farið sé 2 til 3 umferðir.5. Hitastig skal vera yfir 5 gráður í sólarhring eftir notkun. Gæta skal að of hraðri þornun með því að bleyta múrinn eða breiða yfir með plasti.Vottun DS/EN 998-1Þú færð gæða múrvörur í MúrbúðinniVaran er samþykkt vara í SCDP (Supply Chain Declaration Portal Svansins)í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).

Shop here

  • Múrbúðin ehf 412 2500 Multiple locations

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.