National ID number: 560771-0109
560771-0109
Möguleikarnir eru óþrjótandi. Leyfðu sölumönnum okkar að þjónusta þig og aðstoða við val á hentugustu og hagkvæmustu lausninni.
Árið 2013 var bæði vélakostur og húsnæði endurnýjað mikið. Framleiðslusalur uppfyllir nú ströngustu kröfur matvæla- og lyfjaeftirlits um framleiðslu á umbúðum sem koma í snertingu við matvæli. Við val á vélum var lögð áhersla á gæði prentunar og hagkvæmni í rekstri.
Vörumerking var stofnuð árið 1962 og fagnaði því 50 ára afmæli árið 2012. Við viljum tryggja framleiðslu- og afhendingaröryggi. Leggjum okkur fram um að afhenda vöruna á tilskyldum tíma.
Starfsemi Vörumerkingar er í sífelldri þróun og eru starfsmenn vakandi fyrir nýjum tækifærum. Vörumerking framleiðir merkingar á umbúðir úr pappír, plastefnum og álfólíu. Límmiða hverskonar, merkingar á gosdrykki og bjór, állok á mjólkurvörur og álfilmur á pilluspjöld svo eitthvað sé nefnt.