Product image

3. Sigga Beinteins og Grétar, fordrykkur, matur og gisting á Hótel Búðum. Val um tvær dagsetningar: 13. & 14. nóvember. Kjör fyrir tvo.

Hótel Búðir

Sigga Beinteins & Grétar Örvarsson á Hótel Búðum
Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu

Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.

Helgina 13. og 14. nóvember mun…

Sigga Beinteins & Grétar Örvarsson á Hótel Búðum
Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu

Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.

Helgina 13. og 14. nóvember munu ein af okkar ástsælustu tónlistarmönnum landsins, Sigga Beinteins og Grétar í Stjórninni, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.

Innifalið fyrir tvo

• Fordrykkur við komu
• Þriggja rétta kvöldverður
• Lifandi tónleikar með Siggu og Grétari í lounge rými hótelsins
• Gisting í eina nótt
• Ljúffengur morgunverður daginn eftir

Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.
Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!

Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is


Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr nýrri viðbyggingu hótelsins. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Afbókunarskilmálar Pakkinn er óendurgreiðanlegur. Komi upp aðstæður sem gera þér ókleift að mæta biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við okkur eigi síðar en 48 klukkustundum fyrir komu . Við munum þá leitast við að finna bestu lausnina, hvort sem það er að færa bókunina á aðra dagsetningu eða útbúa gjafabréf að sama verðmæti. Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleikahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí).
  • Hótel Búðir
    Hótel Búðir | 435 6700 435 6700 Búðum, 356 Snæfellsbæ

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.