Product image

Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Jewel Wing Bak - Dökkblár og Bleikur

Arena

Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear W Jewel

Arena Jewel er fallegur dökkblár sundbolur með aðhaldi, sérhannaður fyrir konur sem vilja stuðning, fallegar línur og aukið sjálfstraust í vatninu . Hann tilheyrir Shapewear línunni frá Arena – heimsþekktu ítölsku sundfatamerki – og sameinar hágæða efni, þægindi og vandaða hönnun fyrir kvenlíkamann.

W Jewel sundbolu…

Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear W Jewel

Arena Jewel er fallegur dökkblár sundbolur með aðhaldi, sérhannaður fyrir konur sem vilja stuðning, fallegar línur og aukið sjálfstraust í vatninu . Hann tilheyrir Shapewear línunni frá Arena – heimsþekktu ítölsku sundfatamerki – og sameinar hágæða efni, þægindi og vandaða hönnun fyrir kvenlíkamann.

W Jewel sundbolurinn er með stillanlegum hlýrum, með bleikar skálínur sem draga fram mittissvæðið og setja stílhreina línu á bolinn. Hann veitir miðlungs þekju yfir mjaðmir og er úr teygjanlegu efni sem styður vel við líkamann – sérstaklega á maga og brjóstkassa.

Sundbolurinn hentar vel í léttar sundæfingar, vatnsleikfimi, reglulega sundlaugarnotkun og afslöppun í pottinum. Með innbyggðum stuðningi við brjóst og mótandi Power Mesh efni nær hann fram jafnvægi milli þæginda og styrks – fullkominn fyrir fjölbreytta líkamslögun og daglega notkun.

Stærðir

  • ✅ Sundbolurinn samsvarar sér vel í stærðum og flestar konur taka sína venjulegu stærð

Efni og tækni

  • ✅ Sensitive® FIT efni – 68% endurunnið nælon, 32% elastan (teygjuefni). Sameinar mótun, stuðning og teygjanlegt efni. Efnið er klórþolið , fljóþornandi og með UPF 50+ UV-vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar
  • ✅ Lycra Xtra Life™ – Sérstakt teygjuefni sem er mun endingarbetra en venjulegt elastan og endist betur gegn klór, sólarljósi (UV-geisla), svita og öðrum efnum. Tryggir að sundfatnaðurinn haldi lögun sinni og teygju lengur. Í Sensitive® FIT efninu er Lycra Xtra Life™ notað til að styrkja og lengja líftíma efnisins
  • ✅ Power Mesh er sterkt, teygjanlegt efni sem styður og mótar líkamann, sérstaklega magasvæðið

Mótun, stuðningur og eiginleikar

  • ✅ Sundbolur með aðhaldi fyrir konur – mótar línur með stuðningi
  • ✅ Stillanlegar hlýrar – Þægilegt að klæða sig í og góður stuðningur
  • ✅ Miðlungs skorinn - veitir góða þekju á mjaðmasvæði
  • ✅ Fljótþornandi efni sem andar vel – Þornar hratt með góðum öndunareiginleikum
  • ✅ Innbyggður stuðningur við brjóst –  Aukinn stuðningur við brjóst
  • ✅ UV-vörn UPF 50+ – Veitir áreiðanlega vörn gegn útfjólubláum geislum
  • ✅ Klórþol – Góð klórvörn fyrir reglubundna notkun í íslenskum sundlaugum
  • ✅ Wing bakhönnun – V laga bak sem nær hátt upp á bak

📌 Af hverju Arena Shapewear?

Arena hefur í yfir 50 ár verið leiðandi í hönnun og þróun á sundfatnaði og sundvörum. Shapewear-línan sameinar þægindi, stuðning og góða endingu – hugsað fyrir konur sem vilja aukið aðhald og sjálfstraust í sundlauginni

  • Ludus.is | 792 9900 792 9900 Skólavörðustíg 16a, 101 Reykjavík

The information listed is subject to change without notice. Contents, terms and conditions on vendor's web sites apply.